Matur úr héraði – Local food er félag sem vinnur að framgangi eyfirskrar matarmenningar í víðum skilningi. Eyjafjörður er í senn vagga matvælaframleiðslu, úrvinnslu og matreiðslu. Við höfum að markmiði að auka hróður eyfirskrar matarmenningar sem víðast um heiminn.
Flýtilyklar
Velkomin(n)
Nýjustu fréttir
-
Aðsóknarmet slegið á sýningunni MATUR-INN 2011
Almennt - mánudagur 3.okt.11 10:18 - Lestrar 234Áætlað er að 13-15 þúsund manns hafi sótt sýninguna MATUR-INN sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Sýningin var haldin af félaginu Mat úr Eyjafirði í samstarfi við Matarkistuna Skagafjörð og Þingeyska matarbúrið, fyrirtæki og styrktaraðila. Þátttakendur í sýningunni voru á fjórða tug en sýningin var nú haldin í fimmta sinn og var sú stærsta hingað til hvað sýningarrými og aðsókn varðar.
Lesa meira
-
Átta veitingastaðir glíma við hráefni úr héraði
Almennt - miðvikudagur 28.sep.11 18:35 - Lestrar 332Í tilefni af sýningunni MATUR-INN 2011 var leitað til veitingastaða á Akureyri um að bjóða þessa vikuna upp á matseðil þar sem þeir útfærðu, hver á sinn hátt, hráefni sem tengist Eyjafirði. Þessari hugmynd var tekið af miklum áhuga og átta veitingastaðir bjóða í vikunni og fram á helgina upp á þennan matseðil. Veitingahúsin sem um ræðir eru Greifinn, Strikið, Rub23, Laxdalshús, Goya, Hótel Kea, Örkin hans nóa og 1862 Nordic Bistro. Lesa meira
-
Góðir aðilar leggja hönd á plóg
Almennt - miðvikudagur 28.sep.11 18:28 - Lestrar 279Sýningin MATUR-INN 2011 væri ekki framkvæmanleg án stuðningsaðila, enda viðburðurinn nokkuð stór og umfangsmikill. Auk þess hefur verið lögð rík áhersla á að aðgangur sé ókeypis og sem flestir geti notið. Að þessu sinni hafa eftirtaldir aðilar lagt verkefninu fjárhagslegt lið og kunna aðstandendur sýningarinnar þeim miklar þakkir. Þessir aðilar eru - í stafrófsröð:
Akureyrastofa
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
Félag eyfirskra kúabænda
Samtök iðnaðarins
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
Svínaræktarfélag Íslands
Landssamband kúabænda
Landssamtök sauðfjárbænda
Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi
-
Skemmtileg dagskrá í keppniseldhúsinu
Almennt - þriðjudagur 27.sep.11 17:08 - Lestrar 340Klúbbur matreiðslumeistara - Norðurland hefur með höndum skemmtilega viðburði í eldhúsi sýningarinnar. Segja má að þar blandist saman keppnir fagfólks og leikmanna en jafnan vekur matreiðsla mikinn áhuga sýningargesta. Enda má alltaf læra ný handtök og nýja rétti. Og hafa gaman af. Sá er einmitt tilgangurinn.
Lesa meira
Eins og sjá má á dagskránni hér að neðan munu þjóðþekktir einstaklingar spreyta sig í matreiðslu á lax og bæði matreiðslumenn og bakarar sýna snilli sína. Og svo fæst svarið við því hver gerir bestu flatbökuna!
-
Hátt á fjórða tug þátttakenda
Almennt - þriðjudagur 27.sep.11 16:48 - Lestrar 310Þátttakendur í sýningunni um komandi helgi verða hátt á fjórða tug. Flóran er fjölbreytt, allt frá einstaklingum sem selja vörur sínar á markaðstorginu til stórra fyrirtækja á landsvísu. Sýningarbásar eru samtals um 225 fermetrar og sýningunni er stillt upp á rúmgóðu svæði á gólfi Íþróttahallarinnar. Í heild er sýningarsvæðið stærra en árið 2009, fleiri fermetrar í sýningarbásum og básarnir jafnframt fleiri. Lesa meira

